Lög MFÍK
1.
gr.
Félagið heitir Menningar- og friðarsamtökin MFÍK og er heimili þess
og varnarþing í Reykjavík.
2. gr.
Samtökin eru deild í Alþjóðasambandi lýðræðissinnaðra
kvenna. Samtökin eru óháð stjórnmálaflokkum og hlutlaus um
trúmál.
3. gr.
Markmið samtakanna er:
-
alheimsfriður
og afvopnun
-
að fest verði í stjórnarskrá
að Ísland sé herlaust og að þjóðin fari aldrei með ófriði
gegn öðrum þjóðum
-
frelsi
smáríkja gegn allri ágengni stórvelda
-
að
Ísland standi utan allra hernaðarbandalaga
-
að
loft- og landhelgi Íslands verði lýst kjarnorkuvopnalaust
svæði
-
að
hernaðarumsvif verði aldrei heimiluð innan loft- og landhelgi
landsins
-
að
efla samskipti og samvinnu kvenna í þágu friðar, mannréttinda
og menningar
4.
gr.
Markmiði sínu hyggjast samtökin ná með samstarfi við önnur félagasamtök,
á Íslandi og erlendis, með fundahöldum og fræðslustarfsemi.
5. gr.
Félagar geta orðið:
a) allar konur
b) menningar- og friðarsamtök kvenna
Nöfn
nýrra félaga skulu lesin upp á
aðalfundi.
6. gr.
Árgjald skal ákveðið á aðalfundi. Undanþegnir félagsgjöldum
eru heiðursfélagar
og
félagar sem dvelja erlendis.
7. grein
Allar félagskonur eru kjörgengar til stjórnarstarfa. Stjórn
samtakanna skipa:
Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, þrír meðstjórnendur og
tveir varamenn.
Formaður og varaformaður eru kosnir sérstaklega til tveggja ára og
skulu kosnir sitt árið hvor. Fari svo að formaður falli frá,
flytji af landi eða hafi önnur marktæk forföll, þá tekur
varaformaður við starfi formanns.
Verði varaformaður fyrir forföllum, svo sem fyrr segir um formann,
þá tekur fyrsti meðstjórnandi sæti varaformanns og gildir það
einnig ef varaformaður hefur þurft að taka sæti formanns í
forföllum hans.
Gæta ber þess, að kosning formanns fari fram annað hvort ár og
kosning varaformanns hitt árið og gildir sú regla þó sætaskipti
hafi orðið á kjörtímabilinu.
Sjö konur skal kjósa í stjórn samtakanna árlega og skipta þær
með sér verkum eins og fyrr segir.
8. gr.
Í fastanefndir, sem samtökin kunna að hafa í starfi, skal kjósa
til eins árs í senn á aðalfundi. Æskilegt er að haga kosningum
þannig að aldrei láti allar nefndarkonur af störfum samtímis,
en einnig að endurnýjun fari fram til þess að sem flestar
konur taki þátt í trúnaðarstörfum.
9. gr.
Æski samtök eða félög aðildar að Menningar- og friðarsamtökunum
MFÍK skal það tekið fyrir á stjórnarfundi og síðan lagt
fyrir félagsfund.
10.
gr.
Aðalfund skal halda í janúar eða febrúar ár hvert og skal boða
til hans skriflega með minnst
viku fyrirvara. Á aðalfundi skal kjósa í stjórn samtakanna og tvo
skoðunarmenn reikninga og einn til vara. Á aðalfundi gefur stjórnin
skýrslu um starfið á liðnu ári. Yfirfarnir reikningar
samtakanna skulu lagðir fram til samþykktar á aðalfundi.
Almenna félagsfundi skal að jafnaði halda tvisvar yfir vetrarmánuðina.
Um aðra fundi fer eftir þörfum að áliti stjórnar. Unnið
skal í starfshópum samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar.
11.
gr.
Stjórn félagsins er heimilt að tilnefna félagskonu sem heiðursfélaga
og skal henni þá afhent heiðursskjal.
12.
gr.
Breytingar á lögum þessum má aðeins gera á aðalfundi og hafi
þær áður verið ræddar á einum félagsfundi. Lagabreytingar
eru gildandi ef 3/4 fundarkvenna greiða þeim atkvæði. Ef
tillaga er gerð um að leggja samtökin niður, jafngildir það
lagabreytingu og skal farið með hana sem slíka. Þó
skulu samtökin ekki lögð niður fyrr en stjórnin hefur komið sér
saman um hvar varðveita skuli skjala- og bréfasafn félagsins
og hvernig ráðstafa skuli eignum þess.
Síðasta endurskoðun 15.02.2011
|
 |
STJÓRN MFÍK
Harpa Stefánsdóttir, formaður
has19@hi.is
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, varaformaður
ssgunn@simnet.is
s. 5513695
Sigríður Gunnarsdóttir, gjaldkeri
sigridur.gunnarsdottir@hive.is
s. 5524346
Guðríður Sigurbjörnsdóttir, ritari
gudridur@mfik.is
s. 5512946, gsm. 6912946
Auður Ingvarsdóttir, meðstjórnandi
audur@akademia.is
Margrét Guðmundsdóttir,
meðstjórnandi
mpg@ismennt.is
s. 5542105, gsm. 6947961
Sigrún Gunnlaugsdóttir, meðstjórandi
sjerajon@gmail.com
Varamenn:
Áslaug Einarsdóttir
aslaugeinars@gmail.com
Sigrún H. Einarsdóttir
sigrunhe@gmail.com
|